Lífsmyndir skálds: æviferill Halldórs Laxness í myndum og máli
Ólafur Ragnarsson
223 pages,
ISBN: 9979201045
ISBN13:
Language: Icelandic
Publish: January 1, 1992
Bókin er gefin út í tilefni af níræðisafmæli Halldórs Laxness 1992. Greint er frá ferli Nóbelsskáldsins og brugðið upp svipleiftrum af hugsun Halldórs og umhverfi á langri ævi. Vigdís Finnbogadóttir ritar formála bókarinnar.
Í bókinni er lögð áhersla á myndræna framsetningu efnisins. Hana prýða nær fimm hundruð myndir sem safnað hefur verið frá öllum heimshornum. Uppistaðan er þó komin úr einkasafni Halldórs, fjölskyldu hans og vina. Margar myndanna koma hér í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir. Þá var tekinn fjöldi mynda sérstaklega vegna bókarinnar.
Æviferill Halldórs Laxness er rakinn í tímaröð og er bókinni skipað í sex meginkafla: Uppvaxtar- og æskuár 1902-1919, Mótunar- og þroskaár 1919-1929, Stórvirki og stefnumót 1929-1954, Nóbelsverðlaun 1955, Heima og heiman 19561972 og loks er kaflinn Og árin líða en hann nær yfir næstu tvo áratugi, frá því eftir sjötugsafmæli skáldsins.
Í bókinni er meðal annars vitnað í áður óbirt bréf Halldórs til ættingja og vina á ýmsum tímum. Auk þess eru birtar umsagnir samferðamanna um verk skáldsins og stöðu í íslensku samfélagi ásamt brotum úr bókum hans og greinum.